Sjónvarpstöffarar í bíó 10. ágúst 2006 12:00 Í þá gömlu góðu daga Svona litu Crockett og Tubbs út árið 1984 þegar Don Johnson og Philip Michael Thomas léku kempurnar.
Erkitöffararnir Sonny Crockett og Ricardo Tubbs skipuðu einn svalasta og eftiminnilegasta löggudúett sjónvarpssögunnar í Miami Vice-þáttunum sem sýndir voru á Íslandi í árdaga Stöðvar 2. Þættirnir hófu göngu sína í bandarísku sjónvarpi árið 1984. Þá máttu þeir keppa um hylli áhorfenda við ekki ómerkari sápur en Dallas og Falcon Crest. Þrátt fyrir harða samkeppni festu þættirnir sig í sessi og aðdáendur þeirra héldu tryggð við tvíeykið allt þar til yfir lauk árið 1989. Don Johnson og Philip Michael Thomas léku félagana Crockett og Tubbs sem sigldu undir fölsku flaggi um undirheima Miami og flettu ofan af melludólgum og dópsmyglurum undir dulnefnunum Burnett og Cooper. Leikstjórinn margrómaði Michael Mann var einn framleiðenda þáttanna og þykir eiga allan heiður af svölu útliti þeirra þó hann hafi ekki leikstýrt einum einasta. Hann hefur nú blásið lífi í þá Crockett og Tubbs með Miami Vice-bíómyndinni sem var frumsýnd á Íslandi í vikunni. Johnson og Thomas eru þó fjarri góðu gamni enda komnir til ára sinna og hvergi nærri jafn flottir og þeir voru fyrir sautján árum. Óskarsverðlaunahafinn Jamie Foxx og írski ólátabelgurinn Colin Farrell fylla skörð gömlu mannanna undir styrkri stjórn Mann, sem gætir þess vandlega að þeir séu ætíð ofursvalir. Crockett og Tubbs eru enn við sama heygarðshornið og fá að þessu sinni það verkefni að lauma sér inn í umfangsmikinn eiturlyfjahring með það fyrir augum að stöðva óhóflegt flæði eiturlyfja yfir Miami. Það er þó ekki heiglum hent að leika glæpamenn allan sólarhringinn vikum og mánuðum saman og báðir þurfa þeir að glíma við siðferðislegar spurningar, hvor á sinn hátt, þegar mörkin milli blekkingar og raunveruleika leysast upp. Þeir félagarnir þurfa þó blessunarlega ekki að standa einir í þessu stappi og þeir Farrell og Foxx njóta dyggilegrar aðstoðar glæsilegs liðs aukaleikara með Gong Li (Memoirs of a Geisha), Naomie Harris (Pirates of the Caribbean: Dead Man‘s Chest) og Ciarán Hinds (Júlíus Sesar í Rome) í broddi fylkingar.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Sjá meira