Enginn dauður punktur 10. ágúst 2006 13:30 ísleifur B. Þórhallsson Ætla að hafa færri en betri kvikmyndir á IFF - kvikmyndahátíðinni sem hefst í lok þessa mánaðar.
Kvikmyndahátíðin IFF verður haldin í annað sinn dagana 30. ágúst til 20. september. Fjölmargar athyglisverðar kvikmyndir verða á dagskrá hátíðarinnar í ár en þar ber hæst hina umdeildu heimildarmynd An Inconvenient Truth þar sem fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, varar við afleiðingum gróðurhúsaáhrifanna. IFF sló heldur betur í gegn í fyrra þegar 35 þúsund gestir lögðu leið sína í kvikmyndahús borgarinnar og sáu kvikmyndir sem að öllu jöfnu skila sér ekki á hvíta tjaldið hér á landi heldur daga uppi á myndbandaleigum bæjarins. Góðir gestir lögðu leið sína upp á Frón og nægir þar að nefna spænska leikarann Gael Garcia Bernal sem nú er á hraðri leið upp stjörnustigann í Hollywood auk leikstjórans Walter Salles. Í ár verða í kringum þrjátíu kvikmyndir frumsýndar en hátíðinni verður skipt í fjóra flokka: Heimur sem er rjóminn af óháðum myndum hvaðanæva úr heiminum, Ameríka en það eru óháðar kvikmyndir frá Bandaríkjunum, Heimildarmyndir þar sem bestu heimildarmyndirnar verða sýndar og Gala en í þeim flokki verða sýndar sérvaldar kvikmyndir sem allar verða frumsýndar með mikilli viðhöfn. Þegar hafa fjórtán titlar verið staðfestir og er óhætt að lofa mörgum safaríkum bitum fyrir kvikmyndaáhugafólk. Að sögn Ísleifs B. Þórhallssonar hjá Iceland Film Festival er stefnt að því að hafa færri en betri kvikmyndir á matseðlinum að þessu sinni. „Við viljum ekki hafa dauðan punkt í dagskránni hjá okkur og því verða myndirnar „jafnari“ ef svo mætti að orði komast,“ segir Ísleifur, sem reiknar með því að endanlegur listi verði klár fyrir lok næstu viku. „Við verðum með mikið af myndum frá Cannes og Berlín enda viljum við vera með rjómann af því besta sem gerist í óháðri kvikmyndagerð,“ bætir hann við. „Engu að síður teljum við okkur munu höfða til mjög breiðs hóps,“ segir hann. Líkt og í fyrra er mjög líklegt að hingað komi þekktir erlendir kvikmyndagerðarmenn og má reikna með komu góðra gesta í kringum bæði opnunarmyndina og lokamyndina. „Við ætlum líka að brydda upp á þeirri nýjung að vera með einhverjar uppákomur í kringum hátíðina,“ segir Ísleifur og þá sé það einnig í deiglunni að frumsýna fleiri en eina íslenska kvikmynd á hátíðinni.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Sjá meira