Lífið

Lokað fyrir Mills

McCartney Er sagður hafa misst þolinmæðina gagnvart fyrrverandi konu sinni en hann hefur nú breytt um skrár á húseign sinni svo að Mills komist ekki þar inn.
McCartney Er sagður hafa misst þolinmæðina gagnvart fyrrverandi konu sinni en hann hefur nú breytt um skrár á húseign sinni svo að Mills komist ekki þar inn. MYND/Getty Images

Aukin harka virðist vera hlaupin í skilnað Paul McCartney og Heather Mills en fréttavefur BBC greinir frá því að Mills hafi ekki getað komist inní hús þeirra hjóna í London þar sem skipt hafi verið um skrár.

Lífvörður Mills er sagður hafa klifrað yfir vegg en það varð til þess að starfsfólk McCartney hringdi á lögregluna, sem bað Mills vinsamlegast um að hafa sig á brott. Talsmaður McCartney neitaði að tjá sig við fjölmiðla um þetta tiltekna atvik en Mills er sögð hafa verið að koma á fyrir fram ákveðinn fund.

Samkvæmt Scotland Yard var lögreglan kölluð til vegna ferða konu við landareign í London. „Lögreglumennirnir ræddu við konuna, sem fór án þess að til einhverra vandræða kæmi,“ sagði í yfirlýsingu frá embættinu.

Paul McCartney og Heather Mills tilkynntu um skilnað sinn í maí og kenndu þá fjölmiðlum um, sem höfðu verið duglegir við að birta fréttir um Mills og meðal annars kallað hana „gullgrafara“ sem sæktist bara eftir peningum bítilsins, en McCartney er einn ríkasti listamaður Bretlands. Eftir að McCartney og Mills skildu að borði og sæng hafa birst ansi svæsnar fréttir um fortíð Mills þar sem hún er sögð hafa verið nektarfyrirsæta og vændiskona fyrir ríka karla. Í síðasta mánuði bárust síðan fréttir af því að Mills hefði hafnað ansi rausnarlegu boði McCartney sem býr sig nú undir erfiðan skilnað en hann gæti orðið sá dýrasti í sögu Bretlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.