Lífið

Sumarleg sönglög í kvöld

Andrej Hovrin píanóleikari og Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona Flytja tónlist um bjartar nætur.
Andrej Hovrin píanóleikari og Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona Flytja tónlist um bjartar nætur.

Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona og Andrej Hovrin píanóleikari flytja sönglög eftir Alban Berg, Jean Sibelius, Edvard Grieg og Sergei Rachmaninoff á sumartónleikum Listasafns Sigurjóns í kvöld.

Auður Gunnarsdóttir stundaði nám í Söng­skólanum í Reykjavík undir handleiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og framhaldsnám í tónlistarháskólanum í Stuttgart en hún hefur komið fram í ótal óperuhúsum í Þýskalandi, meðal annars sungið hlutverk Pamínu í Töfra­flautunni og Donnu Elviru í Don Giovanni en hér heima hefur hún sungið hlutverk Mimiar í La Bohéme og Greifynjunnar í Brúðkaupi Fígaró hjá Íslensku óperunni. Árið 1999 kom út geisladiskurinn Íslenskir söngvar þar sem Jónas Ingimundarson leikur með henni á píanó.

Andrej Hovrin er af rússnesku bergi brotinn og nam píanóleik við tónlistarskólann í Samara en hann hélt síðar til framhaldsnáms í Stuttgart í Þýskandi þar sem hann sérhæfði sig í flutningi ljóðasöngs. Andrej hefur komið víða fram sem einleikari og kammermúsík- og ljóðapíanóleikari, t.d. í Svíþjóð, Þýskalandi, Grikklandi og á Ítalíu

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.