Lífið

Þjóðlög fyrir flautu og hörpu

Arna kristín einarsdóttir og hörpuleikarinn elíasabet waage Spila saman í fyrsta sinn á tónleikum á Seyðisfirði.
Arna kristín einarsdóttir og hörpuleikarinn elíasabet waage Spila saman í fyrsta sinn á tónleikum á Seyðisfirði.

Arna Kristín Einarsdóttir flautuleikari og Elísabet Waage hörpuleikari halda tónleika í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði annað kvöld kl. 20.30. Tónleikarnir eru liður í sumar­tónleikaröð Bláu kirkjunnar.

Þema tónleikanna er þjóðlög og sögur úr ýmsum áttum og frá ólíkum tímum. Ferðast er frá Spáni til Perú og Bretlandseyja og hoppað á milli biblíutíma til okkar daga. Leikin eru verk eftir Marin Marais, Marguerite Béclard dHarcourt, Béla Bartok, John Marson, Bernard Andrés og Skaila Kanga.

Arna Kristín og Elísabet koma nú í fyrsta skipti fram sem dúett en báðar hafa þær langan tónlistarferil að baki og unnið saman í Sinfóníuhljómsveit Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.