Býður 80 manns í kjötsúpuveislu á Þjóðhátíð 3. ágúst 2006 16:00 Feðgar í Þjóðhátíðarundirbúningi Guðjón Ólafsson frá Gíslholti er hér fyrir miðju ásamt sonum sínum, þeim Ósvaldi og Ólafi Tý. Synirnir hafa að mestu tekið af föður sínum í málningarvinnu fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. MYND/Tryggvi Már
Þjóðhátíð í Vestmanneyjum hefst með Húkkaraballinu í kvöld. Hátíðin verður svo sett með formlegum hætti á morgun og stendur fram undir morgun á mánudag. Vestmannaeyingar hafa verið á fullu við undirbúning síðustu vikurnar. Fréttablaðið hafði upp á einum heimamanni sem lætur sig aldrei vanta í Herjólfsdalinn. "Ég held að ég hafi farið á eitthvað um 65 Þjóðhátíðir, ég hef alla vega farið frá því ég man eftir mér," segir Guðjón Ólafsson frá Gíslholti. Hann segir að allir í fjölskyldunni séu mikið Þjóðhátíðarfólk, enda hafi hann og systkini hans öll tengst íþróttahreyfingunni náið. "Það er alltaf lögð mikil áhersla á skreytingar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og þar hef ég komið nærri í áratugi," segir Guðjón sem hefur einbeitt sér helst að málningarvinnu fyrir hátíðina. Guðjón er orðinn sjötugur og segist lítið hafa verið í undirbúningnum í ár. Hann hafi þó aðeins "flíkkað upp á Þjóðhátíðarmerkið," eins og hann orðar það. "Synir mínir eru alfarið teknir við af mér núna." Guðjón á tvo syni, þá Ósvald og Ólaf Tý, og segir þá ekki þekkja annað en að taka virkan þátt í undirbúningi Þjóðhátíðar. Sterk hefð hefur myndast hjá fjölskyldu Guðjóns og hún tengist sonunum tveimur náið. "Við erum alltaf með kjötsúpuveislu á laugardagskvöldinu. Það er hefð sem komst á þegar strákarnir voru í skóla á Laugarvatni og hófu að koma með vini og skólafélaga hingað heim. Núorðið er þetta eiginlega opið hús og hingað kemur jafnvel fólk sem maður þekkir hvorki haus né hala á.Ætli það séu ekki allt að 80 manns sem eru að mæta í kjötsúpuveisluna og fyrir okkur er þetta hápunktur Þjóðhátíðarinnar," segir Guðjón. Guðjón hefur upplifað heilmiklar breytingar á Þjóðhátíð í þau 65 ár sem hann hefur sótt hátíðina. Hann nefnir sem dæmi að allt snúist meira um peninga nú en áður: "Það er heilmikill barningur hjá þessum fyrirtækjum sem eru að selja í Dalnum. En menn sætta sig bara við það, enda þarf íþróttahreyfingin mikla peninga. Uppistaðan er auðvitað unnin í sjálfboðavinnu en maður sér samt mun. Þetta er auðvitað aðal fjölskylduhátíðin. Ég hef séð aðrar útihátíðir stæra sig af því að ókeypis sé inn fyrir 11 ára og yngri. Hér í Eyjum hefur verið frítt inn í Dalinn fyrir börn undir fermingu alla tíð. Hér kemur fólk saman frá vöggu til grafar og það er ekkert sem jafnast á við Þjóðhátíð. Við höfum líka verið svo heppin að margt sama fólkið kemur ár eftir ár. Það er besta hrósið fyrir okkur Eyjamenn."
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira