Þrír létust í snjóflóði 24. janúar 2005 00:01
Að minnsta kosti þrír skíðamenn létu lífið í snjóflóði sem féll á vinsælum austurrískum skíðastað um helgina. Víða um heim hefur andstyggilegt vetrarveður valdið usla og mannskaða. Hættuástandi hefur verið lýst yfir á mörgum skíðastöðum í Austurríki vegna yfirvofandi snjóflóðahættu. Mikil ofankoma, vindstrekkingur og svo skyndileg hláka ofan á allt saman veldur því að snjóflóð hafa víða fallið. Þrír Kanadamenn létu lífið þegar snjóflóð féll á skíðabrekkur nærri skíðastaðnum St. Anton í Austurríki á laugardag. Enn er leitað að einum Bandaríkjamanni sem var á snjóbretti á sama stað og er talinn hafa lent í flóðinu. Mennirnir höfðu farið út fyrir troðnar skíðabrekkur í leit að púðursnjó. Þá lést þýskur brettamaður á þýska skíðastaðnum Montafon. Austurrísk yfirvöld hafa tekið tæknina í þjónustu sína og senda skíða- og brettafólki smáskilaboð í síma til að vara það við yfirvofandi snjóflóðum. Hinum meginn á hnettinum, í Massachusetts og New Jersey í Bandaríkjunum, hefur líka verið lýst yfir neyðarástandi vegna stórhríðar sem þar gekk yfir í gær. Fjórtán dauðsföll hið minnsta eru rakin til óveðursins. Jafnfallinn snjór mældist yfir hálfur metri og fór reyndar sums staðar upp í tæpan metra. Þá fór frostið víða yfir tuttugu gráður. Rafmagnsleysi hefur verið viðvarandi, skólahaldi aflýst og fólki ráðlagt að halda sig heima. Tugþúsundir ferðamanna urðu strandaglópar á Austurströnd Bandaríkjanna þar sem aflýsa þurfti vel á annað þúsund flugferðum frá Chicago, New York og New Jersey.
Erlent Fréttir Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira