Kona lífshættu í eftir eldsvoða 27. ágúst 2005 00:01
Ung kona liggur alvarlega slösuð á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss með alvarleg brunasár og reykeitrun eftir eldsvoða í kjallara í tveggja hæða húsi í Stigahlíð í Reykjavík snemma í gærmorgun. Aðra íbúa hússins sakaði ekki en einhverjar skemmdir urðu sökum elds og reyks. Vegfarandi tilkynnti að reykur bærist frá húsinu laust fyrir klukkan sjö og var slökkvilið komið á staðinn fjórum mínutum síðar en Stigahlíð er afar nálægt neyðarmiðstöðinni í Skógahlíð. Tveimur mínútum síðar var búið að bjarga konunni og öðrum íbúum hússins út. Fannst konan meðvitundarlaus á gólfi í herbergi í kjallara hússins og hafði hún brennst illa. Var hún flutt í skyndi á slysadeild. Tveir aðrir íbúar í kjallara hússins sluppu ómeiddir sem og fólk á efri hæðinni en fyrir utan herbergi stúlkunar urðu ekki alvarlegar skemmdir í íbúðinni. Axel Einarsson, húseigandi, sem svaf á efri hæð sagðist ekki hafa orðið var við eld né reyk og fyrst vaknað við komu lögreglu og slökkviliðs. "Við flýttum okkur út og það gekk ósköp vel. Slökkviliðið var fljótt að slökkva eldinn en hann var reyndar ekki mjög mikill heldur var fyrst og fremst mikill reykur. Skemmdir eru allavega ekki ýkja miklar." Hann segir öflugt brunavarnakerfi í húsinu en það fór þó ekki í gang fyrr en reykkafarar brutu sér leið inn í herbergi stúlkunar. Það kom Axel á óvart að hún skyldi finnast þar en hún notaði herbergið fyrst og fremst sem geymslu. "Hún hefur verið afar lítið hér upp á síðkastið og ég vissi ekki að hún gisti þarna þessa nótt." Líðan konunnar áður en Fréttablaðið fór í prentun var óbreytt. Hún er enn þungt haldin og er haldið sofandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira