Amfetamín framleitt á Íslandi 27. ágúst 2005 00:01
Lithái á þrítugsaldri var í gær ákærður fyrir að hafa komið með tvær flöskur af brennisteinssýru til landsins á mánudag. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segir að maðurinn hafi verið tekinn í hefðbundna tollskoðun við komuna til landsins. Jóhann sagði jafnframt að ekkert hefði fundist við fyrstu leit en tollverðir gáfust ekki upp þar sem þeir fundu á sér að eitthvað var grunsamlegt. Þegar þeir töldu sig vera búna að útiloka alla möguleika þá voru tvær áfengisflöskur eftir og þeim fannst þær undarlega þungar og því brugðu tollverðir á það ráð að ná í eins flöskur í Fríhöfninni og bera þyngd þeirra saman. Ekki tókst að greina hvað var í flöskunum á staðnum og var innihaldið því sent til greiningar á Rannsóknarstofu Háskólans í lyfjafræði, en manninum var sleppt. Niðurstöðurnar sýndu að brennisteinssýra var í flöskunum, en hún er leyfisskyld og telst innflutningur hennar brot á ávana- og fíkniefnalöggjöfinni. Maðurinn var handtekinn í gærmorgun, en hann neitar allri sök, að sögn Jóhanns og segist hafa keypt flöskurnar í Póllandi í þeirri trú að í þeim væri venjulegt áfengi. Honum var engu að síður birt ákæra í gær fyrir brot á ávana og fíkniefnalöggjöfinni og verður málið tekið fyrir á þriðjudag. Jóhann segir þetta vera klára vísbendingu um að skipulögð amfetamínframleiðsla fari fram hér á landi. Hann benti á þetta efni væri nauðsynlegt við framleiðslu á amfetamíni og því væri ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að þess sýr hafi átt að nota í slíka framleiðslu, þar sem haft var fyrir því að reyna að smygla henni til landsins. Hann segist ennfremur ekki getað dregið aðra ályktun af þessu máli, en að útlendingar komi að þessari framleiðslu á einn eða annan hátt. Í því ljósi finnst honum þetta vera mjög alvarlegt og sönnun þess að amfetamínframleiðsla sé hafin hér á landi með tilstyrk eða aðstoð erlendra aðila. Jóhann segist hins vegar ekki geta dregið neinar ákveðnar ályktanir út frá því magni amfetamíns sem lagt hefur verið hald á að undanförnu við tollskoðun, en sagði nauðsynlegt að horfast í augu við það að lítið hafi fundist af efnum undanfarið. Hann sagði einnig að lögregla muni án vafa á næstunni leggja mikla áherslu á að finna hvort og hvar amfetamínframleiðslan fari fram.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira