Þúsund manns komin til Eyja 27. júlí 2005 00:01 "
Hér gengur allt saman eins og best verður á kosið," segir Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, en félagið hefur umsjón með framkvæmd Þjóðhátíðarinnar í Vestmanneyjum. Í dag verður lögð lokahönd á undirbúninginn enda verður húkkaraballið svokallaða í kvöld. Veðurblíðan undanfarna daga hefur auðveldað allan undirbúning hjá mótshöldurum víða um land. "Það er miklu auðveldara að fá fólk til að aðstoða og vinna sjálfboðaliðavinnu þegar svona viðrar. Þetta gengur eins og í sögu. Hér voru um sjö til átta þúsund manns í fyrra og við búumst við fleirum í ár enda er þegar orðið uppselt í Herjólf nema í næturferðina," segir Páll. Á Akureyri er fjölskylduhátíðin Ein með öllu haldin í fimmta skiptið í ár. "Við erum búnir að gera góðan samning við veðurguðina og það er stærsti samningurinn sem við gerum. Annars verður nóg af afþreyingu fyrir alla aldurshópa enda er þetta hátíð fyrir alla fjölskylduna," segir Bragi Bergmann á Akureyri. Hann ætlar að milli sextán og sautján þúsund manns hafi lagt leið sína til Akureyrar síðastu verslunarmannahelgi og býst við svipuðum fjölda í ár. Í Galtalæk fer fram Bindindismót í 45. skipti. "Það er gaman að skemmta sér edrú og fyrir það stöndum við. Þetta er hátíð fjölskyldunnar og þeirra sem vilja skemmta sér án vímuefna. Hér er nóg um að vera, mikið af leiktækjum fyrir krakka og afþreying fyrir alla aldurshópa," segir Sævar Finnbogason, sem er í undirbúningsnefnd mótsins. Hann segir að um fjögur þúsund manns hafi lagt leið sína í Galtalæk í fyrra og vonast eftir fleira fólki í ár. Á Neskaupstað fer fram útihátíðin Neistaflug. "Þetta hefur verið undirbúningsvinna frá því í maí. Allt er á ætlun og nú er verið að leggja lokahönd á undirbúninginn. Samanlagt má ætla að með heimamönnum hafi verið hér milli þrjú og fjögur þúsund manns og þar af eru því tæplega tvö þúsund gestir. Við hlökkum mikið til hér á Neskaupstað," sagði Höskuldur Björgúlfsson.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira