Mótmælendur yfirgefa tjaldstæðið 27. júlí 2005 00:01
Frestur, sem fulltrúi sýslumanns á Seyðisfirði gaf mótmælendum við Kárahnjúka til að rýma tjaldsvæðið í landi Valþjófsstaðar, rann út klukkan tólf og lögreglulið er á leið á svæðið til að ganga úr skugga um að því verði framfylgt. Sigurður Ingólfsson fréttaritari Bylgjunnar var á svæðinu í morgun og sagði að okkar er á staðnum í hádeginu og sagði fólkið vera byrjað að taka saman tjöldin og væru að funda um næstu aðgerðir. Þau ætla að tjalda annars staðar en nákvæm staðsetning á fyrirhuguðu tjaldstæði liggur ekki fyrir. Hann sagði mótmælendur vera hissa á því hvernig staðið hefur verið að brottrekstrinum og þá sérstaklega á því hversu stuttan fyrirvara þau hefðu fengið. Tveir erlendir karlmenn og ein kona, sem voru handtekin eftir átök við lögreglu á vinnusvæði við Kárahnjúka í fyrrinótt, voru látin laus í gærkvöldi, en fyrr um kvöldið lá fyrir að Útlendingastofnun teldi ekki tilefni til að vísa fólkinu úr landi. Bæði Landsvirkjun og verktakafyrirtækið Impregilo ætla í dag að kæra mótmælendurna fyrir eignaspjöll. Allt var með kyrrum kjörum á vinnusvæðunum í nótt og fékk lögregla enga beiðni um aðstoð. Lögreglunni eystra barst í gær liðsauki frá Ríkislögreglustjóra og er nú vakt á vinnusvæðunum allan sólarhringinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira