Leita á 30 hektara svæði í sjó 13. september 2005 00:01
Ákvörðun um tilhögun frekari leitar að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er eftir slysið á Viðeyjarsundi um helgina, verður tekin á stöðumatsfundi núna í bítið, að sögn Jónasar Hallssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. Í slysinu fórst kona, en hjón björguðust ásamt 10 ára gömlum syni þeirra. Í gær var notast við neðansjávarmyndavélar við leitina. Björgunarskipið Baldur frá Landhelgisgæslunni leitaði fram á kvöld og naut liðsinnis björgunarbáts Landsbjargar, Ásgríms S. Björnssonar og fjölda kafara. "Svo voru líka með fjórir léttbátar skipaðir vinum og ættingjum," segir Jónas, en leitarsvæðið markast af um það bil eins kílómetra radíus frá slysstað á Viðeyjarsundi. Samkvæmt heimildum blaðsins hafði í gær þegar farið fram allítarleg leit á sjávarbotninum á leitarsvæðinu, en það er nokkuð stórt, um 30 hektarar. Þar munu vera svæði sem mjög erfið eru til leitar, þó svo víðast hvar sé sjávarbotninn auðveldari yfirferðar. Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjón í Reykjavík segir fátt af rannsókn slyssins að segja annað en hún sé ítarleg og haldi áfram. Rannsóknin miðar meðal annars að því að upplýsa með óyggjandi hætti um hver var við stýrið á bátnum þegar slysið varð og um aðstæður allar, hvert ferðinni var heitið, hvort vín hafi verið haft um hönd og fleira slíkt. Heimildir blaðsins herma að fyrstu skýrslutökur af fólkinu sem bjargaðist hafi verið að hefjast í gær. Tæpur hálfur annar tími leið frá því tilkynning barst um slysið þar til fólkinu var bjargað. Rúmum klukkutíma síðar fannst svo konan sem lést. Kafari sem þekkir vel til leitar og björgunar taldi af því sem komið hefur fram um útkallið, að ekki hafi liðið óeðlilega langur tími þar til kafara bar að, heldur hafi viðeigandi björgunarlið verið kölluð til eftir því sem menn gerðu sér ljósan alvarleika slyssins. Kunnugir á Viðeyjarsundi furða sig á að vanur maður kunni að hafa siglt þar á Skarfasker, en á sundinu er bauja sem varar við skerinu. Telja þeir að sá sem stýrði hafi annað hvort ruglast, eða ætlað að stytta sér leið innan við skerið. Skemmdirnar á bátnum bera með sér að áreksturinn við skerið hefur verið allharður.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira