Innlent

Vill skilyrða sölu Landsvirkjunar

MYND/Vísir

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda Flokksins, hyggst á fundi borgarstjórnar á morgun leggja fram tilögu þar sem hann fer fram á að sala Reykjvíkurborgar á tæplega 45% hlut í Landsvirkjun verði skilyrt.

Vill Ólafur að ábyrgðum borgarinnar vegna Landsvirkjunar verði aflétt ef til sölunnar kemur.

Reykjavíkurborg er eins og fram hefur komið í ábyrgðum vegna lána sem voru tekin vegna framkvæmda fyrirtækisins vegna Kárahnjúkavirkjunar. Ólafur leggur það einnig til að borgarstjórn lýsi andstöðu sinni við einkavæðingaráform ríkisins á Landsvirkjun




Fleiri fréttir

Sjá meira


×