Íbúar andvígir háhýsi í Túnum 30. apríl 2005 00:01
Íbúar við Sóltún, Mánatún og Borgartún í Reykjavík eru ekki sáttir við fyrirhugaða byggingu 12 hæða íbúðarhúsnæðis í hverfinu, sem þeir segja stinga í stúf við aðrar byggingar þar. Óánægja íbúa er mikil en byggingin sem um ræðir mun standa á svæði þar sem nú er bílaþvottastöð sem stendur til að rífa í júní 2007. Þá stendur til að reisa tíu hæða hús þar sem nú stendur Bílanaust og átta hæða skrifstofu- og verslunarhúsnæði við Borgartún 26 sem mun skyggja á það útsýni sem íbúar efstu hæða bygginganna í kring borguðu sérstaklega fyrir þegar þeir keyptu. Þeir segja að með þessum framkvæmdum falli verðgildi íbúðanna um margar milljónir. Bárður Hafsteinsson, íbúi við Sóltún 9, segir að hann vilji fyrst og fremst að farið verði eftir þeirri stefnu sem mörkuð hafi verið í aðalskipulagi og að byggð verði svipuð byggð og sé komin á þetta svæði. Þéttleikinn verði svipaður og hæð húsa sömuleiðis. Þá gera íbúar einnig athugasemdir við að veitt hafi verið heimild fyrir byggingu 240 íbúða við Sóltún en í aðalskipulagi frá árinu 2002 er gert ráð fyrir tæplega helmingi færri íbúðum á þessu svæði. Benda menn á að í greinargerð með aðalskipulaginu segi að taka skuli mið af stefnu um þéttleika þegar til framkvæmda kemur, að taka skuli tillit til hæðar nærliggjandi húsa við sömu götu og þess gætt að framkvæmdin leiði aðeins til óverulegra breytinga á byggðamynstri hverfisins. Bárður segir að íbúar hafi ekkert á móti því að byggt verði á svæðinu enda hafi þeir alltaf vitað að svo yrði. Hins vegar vilji þeir að byggt verði í samræmi við þau hús sem hafi verið byggð nú þegar. En geta menn gert einhverjar kröfur þegar þeir eru svo miðsvæðis? Bárður segist telja að svo sé. Hægt sé að gera töluverðar kröfur um að farið verði eftir ákvæðum aðalskipulags, en þar komi skýrt fram hvernig byggð eigi að vera á svæðum sem nánast eru fullbyggð. Samræmi eigi að vera í hlutunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Systir Haraldar er látin Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Sjá meira