Segir fangabúðir um víða veröld 6. júní 2005 00:01 MYND/Reuters
Fangabúðir Bandaríkjamanna á Guantanamo-flóa við Kúbu er aðeins eitt af mörgum leynilegum fangelsum þeirra víðs vegar um veröldina. Þar er mönnum er haldið, þeir beittir misrétti og jafnvel teknir af lífi án dóms og laga. Þessu heldur yfirmaður Bandaríkjadeildar Amnesty International fram. Mannréttindasamtökin Amnesty International og Hvíta húsið hafa undanfarið staðið í hatrammri deilu vegna ásakana Amnesty um stríðsglæpi Bandaríkjamanna og að fangelsi þeirra á Guantanamo-flóa sé gúlag vorra tíma . Bandarískir ráðamenn urðu æfir vegna þessa. Bush Bandaríkjaforseti sagði ásakanirnar fáránlegar og í sama streng tóku þeir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra og Dick Cheney varaforseti. Í viðtali á sjónvarpsstöðinni Fox í gærkvöld stóð William Schulz, yfirmaður Bandaríkjadeildar Amnesty International, þó fast á því að meðferð fanganna í Guantanamo væri vítaverð og að fangelsið væri aðeins eitt af mörgum leynilegum fangelsum Bandaríkjamanna sem staðsett væru víða um heim. Fólk væri fangelsað án dóms og laga og það hyrfi án þess að fjölskyldur þeirra hefði hugmynd um hvar það væri niðurkomið. Þá þekktu samtökin dæmi þess að föngunum væri misþyrmt og þeir jafnvel teknir af lífi í slíkum fangabúðum. Bandaríkjamenn hafa verið með herstöð sína á Guantanamo-flóa frá árinu 1903. Um þessar mundir eru 540 menn þar í haldi. Amnesty International eru ekki einu alþjóðasamtökin sem gagnrýnt hafa meðferð fanganna í Guantanamo. Í skýrslu Rauða krossins á síðasta ári eru sálrænar og líkamlegar aðferðir sem notaðar eru í fangelsinu við yfirheyrslur fanga lagaðar að jöfnu við pyndingar og Human Rights Watch segir þær niðurlægjandi fyrir fanga og brjóta í bága við ákvæði Genfarsáttmálans.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira