Erlent

Vara við hryðjuverkum í Aceh

Danska utanríkisráðuneytið sendi seint í gærkvöldi frá sér viðvörun til norrænna hjálparstarfsmanna um hugsanleg hryðjuverk í Aceh-héraði á Indónesíu í dag. Í upplýsingum ráðuneytisins var ekki nánar tiltekið hvar eða hvenær nákvæmlega hryðjuverkin kynnu að verða framin en í upplýsingum sem ráðuneytið hefu rundir höndum segir að hryðjuverkamenn hyggist láta til skarar skríða gegn norrænum hjálparstarfsmönnum. Danska sendiráðið í Jakarta á Indónesíu sendi í gær til viðvörun til allra Dana á svæðinu þar sem þess er farið á leit að þeir yrðu varir um sig í dag og héldu sig á öruggum stöðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×