Segir hættuna ekki mikla 17. janúar 2005 00:01
Dönsk yfirvöld hafa varað danska þegna við yfirvofandi hryðjuverkaárás í Aceh-héraði í Indónesíu. Íslenskur hjálparstarfsmaður í héraðinu segir hins vegar að það sé almennt mat manna að hættan sé ekki mikil. Það var danska utanríkisráðuneytið sem sendi frá sér viðvörun seint í gær um hugsanleg hryðjuverk í Ache-héraði. Ekki var nánar tiltekið hvar eða hvenær en hjálparstarfsmenn og blaðamenn voru sérstaklega varaðir við árásum og reyndar allir útlendingar. Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða kross Íslands, er eftir því sem best er vitað eini Íslendingurinn sem nú er staddur í Ache-héraði. Hann segist hafa heyrt af þessari viðvörun í nótt en eftir að Rauði krossinn hafi skoðað málið vandlega hafi verið ákveðið að taka mátulega lítið mark á þessu. Hann telji starfsmenn Rauða krossins ekki í hættu og þeir væru ekki þarna ef svo væri. Hins vegar verði ekki fram hjá því litið að í Aceh-héraði sé ófriðarástand og öryggi ekki alltaf tryggt. Fulltrúar hers og uppreisnarmanna hafi lýst yfir vilja til vopnahlés og hann trúi því að þeir meini það í einlægni. Ómar segir að hjálparstarf gangi annars að mestu vel og verið sé að dreifa matvælum og hjálpargögnum til um það bil 50 þúsund fjölskyldna á hverjum degi. Lítil fyristaða sé á flutningi á hjálpargögnum til Aceh-héraðs en vandinn sé sá að vegir, sem opnaðir hafi verið til að hægt væri að flytja gögn landleiðina, hafi gefið sig undan þunga flutningabíla. Því hafi æ meira þurft að nota flugvélar og báta en það hafi gengið ágætilega. Flestir hafi fengið alla þá hjálp sem þeir þurfa.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Sjá meira