Enn eitt reiðarslagið 14. september 2005 00:01
Rækjuveiðar og vinnsla hér á landi er á hröðu undanhaldi og er nú ekki nema brot af því sem var fyrir tíu árum. Markaðsmál og ástand rækjustofnana lofar heldur ekki góðu með framhaldið. Enn eitt reiðarslagið ríður nú yfir rækjuumsvifin hér á landi þar sem tollar af rækju frá Kanada til Evrópusambandsins hafa verið lækkaðir til muna en kanadíska rækjan keppir við íslensku rækjuna á þeim markaði. Heimsaflinn á kaldsjávarrækju hefur líka aukist upp á síðkastið vegna mikilla veiða við Kanada og Grænland sem hefur valdið verðlækkun á heimsmarkaði. Við það bætist svo að úthafsrækjuaflinn hér við land hefur hríðfallið úr 18 þúsund tonnum á næst síðasta fiskveiðiári niður í u.þ.b. fimm þúsund tonn á nýliðnu fiskveiðiári. Næst síðasta ár var auk þess lélegasta veiðiár í langan tíma. Til samanburðar má geta þess að úthafsrækjuaflinn var um 60 þúsund tonn fyrir tíu árum, eða meira en sexfalt meiri en í fyrra. Nú stunda aðeins tíu til fimmtán skip úthafsrækjuveiðar en voru 50 í fyrra og mun fleiri fyrir nokkrum árum. Minnkandi afli á togtíma, lækkandi heimsmarkaðsverð og ört hækkandi olíuverð hefur valdið því að margar útgerðir telja veiðarnar ekki svara kostnaði og hafa því hætt þeim. Útlitið er heldur ekki gott því samkvæmt stofnmælingum Hafrannsóknarstofnunar á úthafsrækjustofninum í sumar sýna bráðabirgðaniðurstöður að nýliðun í stofninum sé mjög slök, eða aðeins fjórðungur þess sem mældist í fyrra sem reyndar var heldur yfir meðallagi. Til að mæta minnkandi afla gripu margar rækjuverksmiðjur til þess að flytja inn heilfrysta rækju til fullvinnslu hér en það þykir nú vart svara kostnaði vegna lækkandi afurðaverðs á heimsmarkaði. Síðustu misseri hefur nokkrum verksmiðjum verið lokað, nú síðast í Súðavík fyrir skömmu. Og sé litið út fyrir 200 mílna fiskveiðilögsöguna er ástandið síður en svo betra. Í fyrra veiddust 400 tonn af utankvótarækju á Dhohrnbanka en aðeins 30 tonn í ár og einungis einn rækjutogari stundar nú rækjuveiðar á Flæmingjagrunni en þeir skiptu tugum fyrir nokkrum árum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira