Málefnin ekki í forgrunni 31. janúar 2005 00:01
Kosið verður til þings í Danmörku 8. febrúar. Eftir því sem kemur fram í könnun Gallup, sem gerð var fyrir Berlingske Tidende fyrr í vikunni heldur núverandi stjórn meirihluta sínum, og fengju borgaralegu flokkarnir 100 þingmenn og hefðu 53,8 prósent atkvæða á bak við sig, en stjórnarandstaðan fengi 75. Þetta er í samræmi við aðrar kannanir sem birst hafa. Venstre, frjálslyndur hægri flokkur, virðist nú stærsti flokkurinn í Danmörku og fengi um 32,5 prósent atkvæða. Það er aðeins meira en í kosningunum og kemur það sumum á óvart, sérstaklega þeim sem áttu von á að flokkurinn myndi líða fyrir andstöðu Dana við innrásina í Írak. Þó að Danir hafi hermenn í Írak, hefur það ekki orðið að stóru kosningamáli. Formaður flokksins, Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra, þykir af mörgum meira aðlaðandi kostur en Mogens Lykketoft, formaður jafnaðarmanna. Hafa kosningarnar meðal annars verið kallaðar fegurðarsamkeppni þeirra á milli, í stað þess að vera kosningar um málefni. Jafnaðarmannaflokkurinn er stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn og er honum spáð um 25,2 prósenta fylgi. Það er nokkuð minna fylgi en hann fékk í síðustu kosningum, þegar jafnaðarmenn fengu 29,1 prósent atkvæða. Þrátt fyrir að vera ekki í stjórn, hefur Danski þjóðernisflokkurinn stutt núverandi stjórnarflokka og mun líklega gera það áfram. Einnig hafa Kristilegir demókratar lýst því yfir að þeir muni styðja núverandi stjórnarflokka, en skoðanakannanir hafa ekki alliar bent til þess að flokkurinn nái manni á þing.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Erlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira