Innlent

Félagsmálaráðherra lofar úrbótum

Það var fullt út úr dyrum hjá Geðhjálp í dag þegar aðstandendafélagið var stofnað. Margir viðstaddra hafa eytt kröftum sínum í áratugi í aðstoð við geðfötluð skyldmenni.

Hver könnunin á fætur annarri hafa staðfest að geðfatlaðir standa höllum fæti í íslensku samfélagi. Þar er þó hvergi tekið tillit til aðstandenda þess fólks - hóps sem ekki síður mæðir á.

Meðal fundarmanna hjá Geðhjálp í dag var Anna Sigríður Valgarðsdóttir, sem á geðfatlaðan son. Anna segir þá sem hafa veikst alvarlega oftar en ekki verða til þess að heimili aðstandenda er breytt í geðdeild.

Anna hefur eins og margir aðstandendur geðfatlaðra lagt tíma og orku í umönnunina, og sér ekki eftir því. En henni svíður úrræðaleysi og slæm þjónusta.

Öll spjót stóðu á Árna Magnússyni félagsmálaráðherra. En hann hefur í hendinni ákvörðun ríkisstjórnar um að setja einn milljarð af Símapeningunum, svokölluðu, í að útvega húsnæði og bæta endurhæfingu geðsjúkra.

Árni segir geðsjúka og aðstandendur þeirra vera næsta forgangshóp í samfélagsþjónustu á Íslandi. "Ég hef heitið því," sagði Árni.

Svanur Kristjánsson, einn þeirra sem stóðu fyrir stofnfundinum í dag, sér bjartari tíma framundan í málefnum geðfatlaðra. Hann segir liggja fyrir að næsta þjóðarátak verði í málefnum geðsjúkra og aðstandenda þeirra. Fjármagn sem varið verði til þess muni skila sér margfalt til baka að hans sögn.

Aðstandendur eins og Anna Sigríður hafa um áratugaskeið barist gegn miklu skilningsleysi á aðstæðum geðfatlaðra. Á sínum tíma sögðu læknar henni að geðfötlun sonarins væri slæmu uppeldi að kenna. Nú vita menn betur. En Anna Sigríður á þá von heitasta að hennar sonur - og aðrir í svipaðri aðstöðu - fái þá aðstoð sem þeir þurfa til að njóta sín.

Anna Sigríður segir þjónustuna við aðstandendur og geðsjúka vera skelfilega. "Mitt líf hefur snúist um þetta og ég hef getað það. Það er ekki víst að það verði mikið lengur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×