Innlent

Lagt af á næstunni

MYND/GVA

NMT-farsímakerfið, sem til margra ára hefur þjónað og tryggt öryggi allra landsmanna, hvort sem þeir eru staddir á sjó eða landi, jafnt í alfaraleið sem utan, verður lagt niður. Enn er á huldu hvað tekur við, en forstjóri Póst- og fjarskipastofnunar útilokar ekki að erlendir aðilar komi að uppbyggingu nýs kerfis.

NMT er langdrægasta farsímakerfið og eru kostir þess fyrir ferðalanga og atvinnustarfsemi ýmiss konar ótvíræðir. Það hefur margsannað gildi sitt sem öryggistæki síðan kerfið var tekið í notkun árið 1986 og hefur gegnt því hlutverki að tryggja skipa- og bátaflotanum góð og örugg fjarskipti á miðunum í kringum landið. Notendur eru um 26 þúsund, meðal annars sjómenn og þeir sem eru á ferðinni þar sem GSM þjónustan er ekki til staðar og það er allvíða eins og hér sést.

 

Síminn hefur nú tilkynnt að hann áætli að hætta rekstri kerfisins frá og með 1. janúar árið 2007.

Í Fjarskiptaáætlun sem var samþykkt á Alþingi fyrr á árinu er mælst til að langdræg stafræn farsímaþjónusta standi til boða um allt land og á miðunum við landið eftir að rekstri NMT-kerfisins lýkur.

Hrafnkell Viðar Gíslason, Forstjóri Póst og fjarskiptastofnunar, telur brýnt að að hið minnsta skuli boðið upp á talþjónustu í framtíðinni á tíðnisviðinu sem NMT notast við.

Stjórnvöld myndu þá bjóða út þess tíðni. Það er hins vegar ekkert sem skyldar símfyrirtæki til að veita langdræga þjónustu. Annað í stöðunni væri að koma upp langdrægari GSM sendum.

Ekki er vitað hver kostnaður yrði, né heldur hvort íslenskir eða erlendir þjónustuaðilar hafi áhuga á að koma þar að. Hann sér ekki fyrir sér að ríkið komi þar að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×