Hnútukast um bensínstyrk 17. október 2005 00:01
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir fjármálaráðherra hafa reynt að þvo hendur sínar af málinu á fundinum. „Þar sat fjármálaráðherra fyrir svörum með geislabaug og vængi og hengdi allt málið á heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, og gerði enga tilraun til að útskýra málið efnislega fyrir landsþingsfulltrúum. Siv sagði framsóknarmenn vera seinþreytta til vandræða og að þeir reyndu að sýna samstöðu með samstarfsflokknum í viðkvæmum málum þótt þeim þætti það ekki alltaf jafn auðvelt. „Við ætlumst til þess sama af forystu samstarfsflokksins... Nú tók hins vegar steininn úr og ég vil mótmæla því að málinu sé alfarið ýtt á Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra." Siv sagði að í landinu væru ekki tvær ríkisstjórnir. „Hér er ein ríkisstjórn. Þannig reynum við framsóknarmenn að haga okkur þó að okkur sé ansi illt í bakinu um þessar mundir." Árni Mathiesen sagði ýmislegt fráleitt hafa komið fram í umræðunum og kvaðst hissa á fyrrverandi ráðherrum sem ættu að -þekkja til verka. „Ég tek undir með Siv Friðleifsdóttur að það er ein ríkisstjórn í þessu landi og hún stendur auðvitað á bak við það." Árni taldi óeðlilegt að gera kröfu til ráðherra um endanlega gerð fjárlagafrumvarpsins þegar enn væri verið að ræða það í nefndum og eftir væru tvær umræður um það. „Man einhver eftir því að fjárlagafrumvarp hafi farið óbreytt í gegnum þingið?" Árni sagði ekkert óeðlilegt að gera breytingar á frumvarpinu en aðalatriðið væri að gæta aðhalds. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra sagði engan kost auðveldan. Hann væri búinn að ræða málið við forystumenn öryrkja og hygðist ljúka endurskoðun málsins fyrir aðra umræðu um fjár Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi um störf þingsins í gær. Hann krafði Árna Mathiesen fjármálaráherra svara um það hvort hann ætlaði að fylgja samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins um að afnema ekki bensín-styrk öryrkja og aldraðra.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira