Áhyggjur af hátæknigreinum 20. september 2005 00:01
Ekki hefur verið rannsakað hvað mörg störf hafa flust úr landi vegna hás gengis krónunnar, eða hver áhrifin eru fyrir efnahagslífið í heild. Þetta segir Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. "Þar skiptir öllu máli hvort fólk sem missir vinnuna, fær vinnu aftur sem eru arðbærari en þau sem fyrir voru. Ef það fer á atvinnuleysisbætur eða fær vinnu sem ekki er eins arðbær er það tjón. Það er full þörf á að kanna hér hvert fólk hefur farið sem hefur misst vinnuna og hver kjör þeirra eru eftir breytingu." Sveinn segir að Íslendingar þurfi að hafa mestar áhyggjur af störfum sem við ættum að geta haldið í og þurfum mest á að halda, til dæmi í hátæknigreinum þar sem eru há laun og mikil verðmætasköpun. Það hafi því verið slæmt þegar Marel ákvað að reisa heldur nýja verksmiðju í Slóvakíu en í Garðabænum. Við gleðjumst yfir útrás íslenskra fyrirtækja, en hörmum þegar störfin fara úr landi en í raun séu þetta tvær hliðar á sama peningi. Hægt væri að lifa við sterka stöðu krónunnar í stuttan tíma, en nú hafi þetta varað í þrjú ár og ekki sjái fyrir endan á ástandinu. "Við sáum þróunina fyrir, en þenslan byrjaði fyrr en nokkur átti von á vegna mikilla væntinga." Fyrir iðnað í landinu segir Sveinn að engin önnur varanleg lausn sé fyrir hendi en að taka upp Evruna til að losna við sveiflur. "Þannig að hér sé hægt að ráðast í framkvæmdir án þess að gengið fari úr skorðum. Nú er líf og heilsa samkeppnsatvinnugreinanna komið í hendur á spákaupmönnum og við þurfum að koma okkur úr þeirri stöðu með því að taka upp stærri og stöðugri gjaldmiðil. Það liggur beint við að það sé Evran. Það skiptir máli að draga úr viðskiptakostnaði og lækka vexti. Upptaka Evru er því mjög heppileg fyrir þá sem kaupa og selja að langmestu leyti í Evrum. Á evrusvæðinu verða menn mun minna varir við slíkar sveiflur."
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira