Innlent

Fundað vegna grjóthrunsins

Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman til fundar í dag vegna grjóthruns úr Óshlíð niður á þjóðveginn um helgina og í ljósi þess að hrun virðist vera að aukast úr hlíðinni. Þannig varð til dæmis tvívegis umtalsvert hrun úr hlíðinni seinni partinn í ágúst þótt vegfarendur slyppu þá, eins og um helgina, þar sem svo vel vildi til í öllum tilvikum að enginn var á ferð þegar hrunið varð. Nokkur hús verða rýmd á Ísafirði í dag til að sprengja þar grjót úr hlíðinni sem óttast er að að öðrum kosti geti oltið niður í byggð við viss skilyrði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×