Innlent

Meðvitundarlaus eftir vinnuslys

Ökumaður stórrar vinnuvélar, svokallaðrar búkollu, var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann í Fossvogi eftir vinnuslys við Hellisheiðarvirkjun í dag. Ökumaðurinn var að bakka farartækinu upp brekku þegar eitthvað brast og búkollann rann um 300 metra niður brekkuna. Talið er að ökumaðurinn hafi kastast út úr farartæki sínu. Hann var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús, gekkst undir aðgerð síðdegis og verður haldið sofandi til morguns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×