Innlent

Ólafur Ragnar á ráðstefnu í BNA

Ólafur Ragnar Grímsson forseti er farinn til Bandaríkjanna þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur skipulagt. Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjar leiðir í baráttunni gegn fátækt, hættu á loftslagsbreytingum og áhrif trúar í stjórnmálum svo nokkur mál séu nefnd. Ráðstefnan hefst í dag með ávörpum Clintons, Jacques Chiracs Frakklandsforseta, Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×