Innlent

Bílvelta á Reykjanesbraut

Bílvelta varð á Reykjanesbraut á Strandarheiði klukkan sjö í gærkvöld. Varnarliðsmaður sem var á leið til Keflavíkur missti stjórn á bílnum og fór hann ofan í dæld sem er á milli akreinanna en Reykjanesbraut er tvöföld á þessum kafla. Varð að klippa manninn úr bílnum en hann var síðan fluttur á Landspítalann í Fossvogi. Hann var allan tímann með meðvitund og að sögn vakthafandi læknis benda fyrstu rannsóknir til að hann sé ekki alvarlega slasaður. Bíllinn er hinsvegar gjörónýtur að sögn lögreglunnar. Grunur leikur á að maðurinn hafi sofnað undir stýri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×