Innlent

Bíll fór út af á Reykjanesbraut

Bíll fór út af veginum á Strandheiði á Reykjanesbraut, mitt á milli Voga og Kúagerðis, fyrir stundu að sögn lögreglunnar í Keflavík. Talið er að ökumaðurinn sé slasaður en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um tildrög óhappsins að svo stöddu. Lögregla er á vettvangi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×