Innlent

Kaupmáttur launa hefur rýrnað

Kaupmáttur launa þorra launþega hefur rýrnað frá áramótum samkvæmt útreikningum hagfræðinga ASÍ. Verðbólgan hefur haft launahækkunina um síðustu áramót af þorra þeirra launþega sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningum fjölmennustu verkalýðshreyfinga. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, segir raunina þá að almennir launþegar fái minna fyrir launin sín nú en þeir gerðu um síðustu áramót. Þeir hafi verið að fá 3% launahækkun á síðustu tólf mánuðum en á sama tíma hafi verðbólgan verið 4,8%. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að aðalatriðið í umræðu um hvort samningum yrði sagt upp eða ekki væri það að kaupmáttur hefði aukist. Ólafur Darri kannast ekki við það. Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir fyrir neðan allar hellur að ráðamenn segi verkafólk þurfa að fara varlega í kröfum sínum á sama tíma og laun þeirra hæst launuðu hækki verulega. Hann er sérstaklega óánægður með tuttugu og sjö prósenta launahækkun bankastjóra Seðlabankans á dögunum. „Ég bara spyr um ábyrgð þessara manna. Hvar er hún? Ef þetta er birtingarmynd ábyrgðar þeirra þá gef ég nú ekki mikið fyrir þessa kalla,“ segir Kristján.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×