Verðbólga mælist nú 4,8 prósent 12. september 2005 00:01
Í kjarasamningum sem gerðir voru í fyrra er ákvæði sem segir að endurskoða megi samninga eða segja þeim upp fari verðbólgan yfir verðbólgumarkmið Seðlabankans. Verðbólgumarkmið er 2,5 prósent en samkvæmt nýjustu tölum frá Hagstofu Íslands mælist verðbólga síðustu tólf mánaða nú 4,8 prósent. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að nefnd skipuð tveimur fulltrúum fá SA og tveimur frá Alþýðusambandi Íslands muni reyna að komast að samkomulagi um breytingar á kjarasamningum í ljósi verðbólguákvæðisins. Ef samkomulag næst ekki má segja samningum upp. Ákvæðið tekur gildi í nóvember. "Nú er verðbólgan orðin það mikil að ljóst er að það mun reyna á þessar forsendur. Það er ekki umdeilt að þetta sé marktækt frávik frá verðbólgumarkmiðum Seðlabankans," segir Hannes. Hann segir ómögulegt að segja til um hvað muni gerast. "Það stefnir í einhverjar niðurstöður, annað hvort breytingar á samningum eða uppsögn þeirra," segir hann. Ásgeir Jónsson hagfræðingur segir að ef farið verði fram á launahækkun í nýjum kjarasamningum muni verðbólgan hækka enn meir. "Það er ekki víst að hækkun kauptaxta á þessum tímapunkti muni skila auknum kaupmætti vegna þess að frekari hækkun á launakostnaði mun ýta verðbólgu upp," segir Ásgeir. Hannes bendir á að samningarnir sem gerðir voru í ársbyrjun 2004 verði þá til tveggja ára en ekki fjögurra. "Langtímakjarasamningum er ætlað að skapa festu og aukna vissu fyrir atvinnureksturinn til að geta séð lengra fram í tímann og gert raunhæfari áætlanir en ella," segir Hannes. "Það er í raun og veru mjög mikilvægt verkefni að reyna að halda sem mestum stöðugleika og valda sem minnstri óvissu og titringi í kringum þessi mál. Kaupmáttur í landinu er í raun og veru of hár, sem kemur fram í þessum mikla viðskiptahalla og miklum innflutningi alls kyns neysluvarnings. Það getur ekki verið þjóðhagslega mikilvægt verkefni að auka kaupmátt. Það er ef til vill verkefni að varðveita hann eins mikið og kostur er," segir Hannes.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira