Bjóða út næsta áfanga í mánuðinum 12. september 2005 00:01
Næsti áfangi tvöföldunar Reykjanesbrautar, kaflinn milli Strandarheiðar og Njarðvíkur, verður boðinn út síðar í þessum mánuði. Miðað er við að framkvæmdir hefjist í vetur. Baráttumönnum fyrir bættri Reykjanesbraut þótti það stór dagur þegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tók fyrstu skóflustungu að fyrsta áfanga að breikkun brautarinnar í janúarmánuði árið 2003. Vinnuvélar verktakafyrirtækisins Háfells hófu þegar að grafa en verksamningar gerðu ráð fyrir að níu kílómetrar yrðu tvöfaldaðir. Vinnan gekk framar vonum og svo hratt að Vegagerðin samdi við Háfell um að bæta við þremur kílómetrum og það var svo í júlímánuði í fyrrasumar sem samgönguráðherrann gat ekið um nýjan tólf kílómetra kafla og þar með opnað hann formlega, átján mánuðum eftir fyrstu skóflustungu. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar í síðustu viku um ráðstöfun 1.600 milljóna króna af söluandvirði Símans til Reykjanesbrautar tryggir fjármögnun næsta áfanga, að sögn Jóns Rögnvaldssonar vegamálastjóra, en hann sagði í dag að stefnt væri að því að hann yrði boðinn út síðar í þessum mánuði. Það er 12 kílómetra langur kafli frá Strandarheiði, þar sem hætt var síðast, og alla leið að Njarðvík. Á þessum kafla verða gerð þrenn mislæg gatnamót, við Vogaafleggjara, Grindavíkurafleggjara og að nýju hverfi í Innri-Njarðvík. Jafnframt verða tvenn undirgöng fyrir gangandi vegfarendur og hestamenn. Tilboð verða væntanlega opnuð í nóvember og gætu framkvæmdir því hafist í kringum áramótin. Verklok verða miðuð við haustið 2007 en verktökum boðið upp á flýtifé takist að opna veginn fyrr. Eftir það verður aðeins einum kafla ólokið, sex kílómetra löngum frá Hafnarfirði og suður fyrir Straumsvík.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira