Framboð til kosninga í Reykjavík 9. september 2005 00:01
Mun fleiri hafa tilkynnt um framboð í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor en í prófkjör hjá öðrum flokkum. Prófkjör flokksins verður þó ekki haldið fyrr en 4. og 5. nóvember. Kosning á lista hefur verið bindandi hljóti menn 50 prósent atkvæða í það sæti. Björn Bjarnason, sem er í fyrsta sæti listans, mun ekki gefa kost á sér aftur. Þá er einnig ljóst að Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sem nú er í þriðja sæti mun ekki bjóða sig fram aftur. Júlíus Vífill Ingvarsson hefur tilkynnt að hann muni sækjast eftir einu forystusæti listans og er fastlega gert ráð fyrir að hann muni bjóða sig fram í fyrsta sætið. Þá hafa einnig raddir verið uppi um að Guðlaugur Þór Þórðarson muni gefa kost á sér í fyrsta sætið. Ef úr verður eru þeir fjórir sem gefa kost á sér í forystu flokksins í borginni, en þegar hafa Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Gísli Marteinn Baldursson tilkynnt það. Það er nokkuð síðan tilkynnt var að Ólafur F. Magnússon muni leiða Frjálslynda flokkinn og Margrét Sverrisdóttir verður í öðru sæti. Ekki hefur verið tilkynnt um önnur sæti, en eftir uppstillingu mun flokkurinn bjóða upp á fléttulista. Innan Framsóknarflokksins ætlar Anna Kristinsdóttir gegn Alfreð Þorsteinssyni í slaginn um fyrsta sæti. er fastlega gert ráð fyrir að Björn Ingi Hrafnsson tilkynni fljótlega að hann bjóði sig fram til forystu í borginni. Ekki hefur verið ákveðið hvernig verður raðað á listann, en á kjördæmaráðsfundi, sem verður líklega í næsta mánuði, verður ákvörðun tekin um niðurröðunina. Reiknað er með prófkjöri, en framsóknarmenn eru ekki á eitt sáttir um hversu opið það verður. Einungis þrír hafa tilkynnt um framboð hjá Samfylkingunni: Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein í fyrsta sætið og Stefán Jóhann Stefánsson í öruggt sæti. Ekkert hefur verið ákveðið um prófkjör innan flokksins. Þá hafa þrír tilkynnt að þeir stefni á öruggt sæti hjá vinstri grænum: Svandís Svavarsdóttir í fyrsta sætið, Árni Þór Sigurðsson í annað sætið og Grímur Atlason í þrjú fyrstu sætin. Einn hefur sóst eftir fjórða sætinu. Framboðsfrestur rennur út 16. september og prófkjör fer fram 1. október.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira