Tvístruðu okkur með hræðsluáróðri 31. ágúst 2005 00:01
Laufey Jónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður á gæsluvellinum í Hamravík í Grafarvogi, var tregafull þegar hún læsti honum í hinsta sinn í gær en hún hefur starfað þar í 16 ár. Líklega fundu fleiri til trega því 90 ára sögu gæsluvalla Reykjavíkur lauk í gær. Laufey segir að gæsluvellirnir hafi haft margt til síns ágætis sem söknuður verði af. Til að mynda sé lögð mikil áhersla á útivist á gæsluvöllum. Guðrún Guðjónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður á gæsluvellinum Malarási í Arbæ, sagði á sínum síðasta vinnudegi í gær að vissulega hefði dregið úr aðsókn á gæsluvellina en það sé vegna þess að ekki hefði verið hugað að því að láta þá mæta breyttum kröfum og þörfum foreldra í þjóðfélaginu. Eftir að gæsluvöllum var lokað hittust gæslukonur á gæsluvellinum við Njálsgötu en hann er sá elsti. Þar næst héldu þær kveðjufund í húsi BSRB við Grettisgötu. Guðrún er ein þeirra sem ekki hafa skrifað undir starfslokasamning við Reykjavíkurborg og hyggst hún ekki gera það fyrr en kröfum gæslukvenna verði fyllilega mætt. Tuttugu og tvær konur eru í félagi gæslukvenna og segir Guðrún að rúmlega helmingur þeirra hafi skrifað undir starfslokasamning. "Borginni tókst að tvístra okkur með hræðsluáróðri," segir Guðrún og ítrekaði að enginn uppgjafartónn sé í þeim sem ekki hefðu látið hræða sig til að skrifa undir og væru þær nú að íhuga hvað tekið verður til bragðs í stöðunni. Laufey starfar hins vegar áfram hjá borginni við starfsmat og var full tilhlökkunar þótt hún segðist eiga eftir að sakna barnanna og góðs starfsanda á gæsluvellinum.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira