R-listi fengi átta borgarfulltrúa 30. ágúst 2005 00:01
Ef samstarfsflokkar um Reykjavíkurlistann hefðu náð samkomulagi um að bjóða aftur fram í næstu borgastjórnarkosningum hefði listinn fylgi 48,9 prósent Reykvíkinga, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 47,8 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn og 1,9 prósent Frjálslynda. 1,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust myndu kjósa eitthvað annað. Ef þetta væri niðurstaða kosninga myndi R-listinn fá átta borgarfulltrúa, líkt og hann hefur nú. Sjálfstæðismenn fengju sjö borgarfulltrúa, í stað sex borgarfulltrúa sem þeir hafa nú og Frjálslyndi flokkurinn fengi engan borgarfulltrúa. Í könnun sem Fréttablaðið birti á mánudag, um fylgi flokkanna í Reykjavík, kom fram að þeir flokkar sem nú mynda R-listann höfðu stuðning 43,3 prósent svarenda. 53,5 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn og 2,2 prósent sögðust styðja Frjálslynda flokkinn. Heldur fleiri tóku afstöðu þegar spurt var hvaða lista fólk myndi kjósa, ef Reykjavíkurlistinn byði fram aftur, eða 64,9 prósent í stað tæplega 57 prósenta sem tóku afstöðu þegar spurt var hvaða lista fólk myndi kjósa ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga nú. Gæti það gefið til kynna að hluti óákveðinna, sem voru stuðningsfólk R-listans hafi ekki gert upp hug sinn, hvern af samstarfsflokkunum það mun kjósa í næstu kosningum. Nokkur munur var á afstöðu kynjanna. 49,5 prósent karla sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokk, en 45,9 prósent kvenna. Þá sögðust 45,1 prósent karla, sem gert höfðu upp hug sinn, myndu kjósa R-listann, en 53,3 prósent kvenna. 2,9 prósent karla sögðust myndu kjósa Frjálslynda, en 0,8 prósent kvenna. Sé litið til allra svarenda höfðu 24,9 prósent ekki gert upp hug sinn og sögðust óákveðin, 22,5 prósent karla og 27,3 prósent kvenna. Könnun var gerð dagana 27. og 28. ágúst. Hringt var í 800 Reykvíkinga, skipt jafnt milli kynja og valið af handahófi úr þjóðskrá. Spurt var: "Hvaða lista hefðir þú kosið, hefðu samstarfsflokkar um Reykjavíkurlistann náð samkomulagi um að bjóða aftur fram undir hans nafni?" og tóku 64,9 prósent svarenda afstöðu til spurningarinnar. Fylgi flokka ef Reykjavíkurlisti byði fram aftur Skoðanakönnun 27-28/8 Úrslit kosninga 2002 % Borgarfulltrúar % Borgarfulltrúar D 47,8 7 40,2 6 F 1,9 0 6,1 1 R 48,9 8 52,6 8 Annað 1,3 0 1,2 0
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira