82 ára sótti um vinnu á Hrafnistu 29. ágúst 2005 00:01
Fólk á áttræðisaldri er meðal umsækjenda um umönnunarstörf á dvalarheimilum Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði sem voru auglýst fyrir skömmu að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur hjá starfsmannaþjónustu Hrafnistu. Elsti umsækjandinn er 82 ára. hann sótti um starf í mötuneyti Hrafnistu. Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að skortur á starfsfólki sé yfirleitt hefðbundið haustvandamál, en í mun meiri mæli nú en áður. "Það er meiri hreyfing á fólki og spennan minnir dálítið á árin 2000-2001," segir hann. "Ráðningarnar hafa gengið hægt og rólega. Fyrir rúmlega hálfum mánuði vantaði 34 stöðugildi, en um það bil 25 núna. Á Hrafnistu í Reykjavík eru um 300 stöðugildi, þannig að það eru 10 prósent sem vantar. Hjá okkur hefur fólk unnið alveg til sjötugs og jafnvel lengur í gegnum árin, ef það vill vinna og heldur heilsu. Auglýsing Húsasmiðjunnar eftir eldra fólki til starfa ýtti við okkur að láta vita betur af okkur að við værum einnig tilbúin til að taka fólk á þessum aldri í vinnu, þótt svo að við hefðum gert það í gegnum árin. Við erum aðallega að hugsa um fólk á aldrinum 65 ára til sjötugs. Það er fullt af fólki úti í þjóðfélaginu sem er við fulla heilsu og vill gjarnan vinna eitthvað og hitta annað fólk." Sveinn segir enn fremur að eldra starfsfólki á Hrafnistu sé boðið upp á sveigjanlegan vinnutíma á tímakaupi. Það geti til að mynda unnið tvo laugardaga í mánuði, tvisvar í viku og unnið frá klukkan 17-20. Þessu hafi forráðamenn Hrafnistu viljað koma á framfæri. "Skortur á starfsfólki er bundinn við umönnunarstörfin," heldur Sveinn áfram. "Við erum betur stödd en oft áður hvað varðar fagfólkið, og þá fyrst og fremst hjúkrunarfræðingana." Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri tækni- og eignasviðs á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, sagði stöðuna í starfsmannahaldi ófaglærðra svipaða og undanfarin ár. Alltaf væri einhver hreyfing, þó ekki meiri nú en áður.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira