DV hafi brotið gegn siðareglum 29. ágúst 2005 00:01
DV braut alvarlega gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands, samkvæmt úrskurði siðanefndar félagsins, vegna forsíðufréttar um starfsmann Landspítalans sem var á gjörgæsludeild með hermannaveiki. Í lok maí síðastliðins birti DV frétt um að starfsmaður Landspítalans hefði veikst af hermannaveiki á Ítalíu, en birt var mynd af honum bæði á forsíðu blaðsins og inni í því auk þess sem greint var frá nafni konu hans. Fleiri fréttir af veikindunum fylgdu í kjölfarið. Sonur mannsins kærði umfjöllunina til siðanefndar Blaðamannafélagsins, en í kæru kom fram að sjúklingurinn væri enn þungt haldinn, í öndunarvél og ekki úr lífshættu. Kærandi taldi að með greinum blaðsins hafi DV haft sorg fjölskyldunnar að féþúfu og um leið aukið mjög á þjáningar hennar. Nafn- og myndbirtingin hafi ekkert haft með almannahagsmuni að gera. DV taldi sig hafa sýnt viðkomandi einstaklingi skilning og nærgætni í allri umfjöllun sinni, en sum veikindi séu þess eðlis að fréttir af þeim og því hverjir hafi fengið ákveðna sjúkdóma séu eðlilegar. Siðanefnd Blaðamannafélagsins komst að þeirri niðurstöðu að nafn sjúklingsins hefði verið birt í heimildarleysi ásamt mynd af honum og að málavextir hefðu ekki bent til þess að nauðsyn hefði borið til að almenningur vissi hver sjúklingurinn væri né hvernig hann liti út. Nefndin telur að blaðið hafi aukið þjáningar sjúklingsins og aðstandenda hans. Nefndin undirstrikar að gæta þurfi sérstakrar varkárni í umfjöllun um sjúklinga og að virða beri einkalíf þeirra. Í úrskurði siðanefndar Blaðamannafélagsins segir að ritstjórn DV hafi brotið gegn siðreglum félagsins og að brotið sé mjög alvarlegt.
Fréttir Innlent Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira