Prófmál í Bolungarvík 26. ágúst 2005 00:01
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í morgun Bolungarvíkurkaupstað til að greiða eigendum þriggja húsa á snjóflóðahættusvæði í bænum rúmar fimmtíu og sjö milljónir króna, sem er nokkuð hærra en bærinn vildi borga. Bæjarstjóri segir að um prófmál sé að ræða. Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í morgun Bolungarvíkurkaupstað til að greiða eigendum þriggja einbýlishúsa á snjóflóðahættusvæði í Bolungarvík rúmar 57 milljónir króna. Ástæðan er að árið 2001 létu bæjarsjóður og Ofanflóðasjóður meta eignirnar og í kjölfarið gerði bæjarstjórn húseigendunum tilboð í eignirnar uppá 39,5 milljón króna. Eigendur húsanna þriggja höfnuðu hins vegar tilboðinu. Síðla árs 2001 ákvað bæjarstjórn síðan að taka húseignirnar eignanámi með heimild í lögum um varnir gegn snjóflóðum. Í framhaldinu var óskað eftir mati matsnefndar eignarnámsbóta og um mitt árið 2002 úrskurðaði nefndin að bætur skyldu miðast við enduröflunarvirði eignarinnar, samtals fyrir húsin þrjú rúmar 57 milljónir króna. Bæjarstjórn sætti sig ekki við þennan úrskurð og vildi láta hnekkja mati nefndarinnar en því var hafnað. Þegar þarna var komið við sögu ákvað bæjarstjórnin að fara í mál við húseigendurna þrjá og var þess krafist að þeir yrðu dæmdir til að gefa út afsal til bæjarins fyrir fasteignirnar, gegn því að bærinn myndi greiða tæpar 40 milljónir fyrir eignirnar. Í mati dómsins kemur fram að í ljósi þess hve eignirnar eru í góðu ástandi, eigi Bolungarvík að greiða húseigendunum rúmar 57 milljónir fyrir eignirnar. Einar Pétursson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir að bæjarstjórnin sé ekki búin að ákveða hvort hún muni áfrýja dómnum. Aðspurður um það hvort ekki hefði verið ódýrara og einfaldara að semja beint við fólkið, sagði hann að vissulega hefði það verið einfaldara en að bíða í 4-5 ár. En það reyndist ekki unnt. Hann sagði einnig að ekki færi saman matsverð eignarnámsbóta og þess sem Ofanflóðasjóður vill greiða og því sé farin þessi leið. Einar segir að um prófmál fyrir önnur sveitarfélög sé að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira