Salmonella í innfluttu grænmeti 14. ágúst 2005 00:01
Salmonella fannst í sjö prósentum ferskra kryddjurta og annarra ferskra matvara frá Taílandi, í nýrri könnun umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Umhverfisstofnun ráðleggur neytendum að meðhöndla ferskar matvörur frá Taílandi þannig að lágmarkslíkur séu á krossmengun. Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hefur að beiðni Umhverfisstofnunar rannsakað ferskar kryddjurtir, grænmeti og ávexti sem koma frá Tælandi. Sjö prósent sýnanna reyndust sýkt. Ástæða þess að farið var í athugunina er viðvörun Norðmanna en þar greindist salmonella í 25 prósentum tilvika í rannsókn sem þeir gerðu á sambærilegum vörum. Baldvin Valgarðsson, matvælafræðingur hjá Umhverfisstofnun, sagði að það hefðu verið tekin sýni af taílensku grænmeti og kryddjurtum og það fannst salmonella í þremur sýnum af fjörutíu og tveimur. En auk þess voru einnig saurkóligerlar og ekóligerlar í nokkrum sýnum. Niðurstöðurnar reyndust betri en búist hafði verið við en þær eru samt ekki viðunandi að sögn Baldvins. Hér voru niðurstöðurnar svipaðar og í Svíþjóð. En mörgum kemur eflaust á óvart að salmonella finnist í ferskum matvælum úr jurtaríkinu. Baldvin sagði að nátturuleg heimkynni salmonellu væri jarðvegur og neysluvatn. Og í þessu tilfelli hefur líklega orðið mengun á ræktunarstigi og síðan dreifst áfram. Sýnin þrjú sem reyndust vera salmonellusýkt koma frá sitt hverjum framleiðandanum í Tælandi. Þeir sem fluttu þau inn verða að sýna fram á að tvær næstu sendingar frá sama framleiðanda séu ósýkt. Gangi það ekki eftir verður sett bann á ínnflutning frá þeim framleiðanda. Til að forðast að smit komist yfir í tilbúin matvæli er ráðlegt er að skola vel kryddjurtir, ávexti og grænmeti, sem hugsanlega eiga uppruna í Tælandi. Þá er best að nota vörurnar aðeins í rétti sem hitaðir eru upp fyrir 75 gráður.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent