Allar framkvæmdir út úr friðlandi 13. ágúst 2005 00:01
Framkvæmd Norðlingaölduveitu verður öll utan friðlandsins Þjórsárverum að því er Samvinnunefnd miðhálendis samþykkti á fundi sínum á föstudag. Set- og veitulón norðaustan friðlandsins verða ekki heimiluð og er þannig vikið frá tveggja ára gömlum úrskurði Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, um Norðlingaölduveitu. Minnkun Norðlingaöldulóns úr 62 ferkílómetrum í fimm var jafnframt samþykkt af nefndinni. "Til að koma til móts við orkuvinnslu í landinu heimiluðum við opnun nýrrar jarðhitavirkjunar við Hágöngulón," segir Óskar Bergsson, formaður nefndarinnar. "Rannsóknarboranir þar gefa fyrirheit um orku sem nemur allt að hálfri Kárahnjúkavirkjun." "Það þarf að skoða hvort nefndin fer út fyrir valdsvið sitt þegar hún tekur afstöðu sem er önnur en afstaða umhverfisráðherra á sínum tíma," segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. "Afstaðan er tekin út frá umhverfissjónarmiðum og þar er ráðherra æðsta stjórnvaldið." Friðrik segir að sest verði yfir niðurstöðu samvinnunefndar á næstu dögum þar sem staða verkefnisins verði skoðuð með tilliti til arðsemi virkjunarinnar og lagalegrar stöðu Landsvirkjunar. Hann segir engin áform uppi um að hætta við framkvæmdirnar þrátt fyrir að ljóst sé að arðsemi þeirra minnki í kjölfar niðurstöðu nefndarinnar. "Við þurfum að skoða hver staða okkar er og til hvaða ráða hægt er að grípa." Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Aðalsteinn Guðmundsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segjast fagna niðurstöðunni. Báðir telja að hætta verði við framkvæmdirnar í kjölfar niðurstöðu samvinnunefndarinnar. Breytingar Samvinnunefndar á svæðisskipulagi svæðisins verða í framhaldinu sendar Skipulagsstofnun og síðan umhverfisráðherra til staðfestingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira