Greiðum skuldir ríkisins 29. júlí 2005 00:01
Geir Haarde fjármálaráðherra segir rétt að nota hluta andvirði Símans til þess að greiða niður skuldir ríkissjóðs. "Það er góð ráðstöfun og lagar stöðuna ríkissjóðs til framtíðar," segir Geir. Gengið verður til samninga við Skipti ehf. sem var bauð hæsta verðið fyrir Símann eða 66,7 milljarða króna. Geir segir að sú upphæð verði að fullu greidd þegar búið verður að yfirfara öll atriði, meðal annars af Samkeppniseftirlitinu. Hann tekur undir með Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddssyni um að nota eigi hluta andvirðisins til samfélagslegrar uppbyggingar. "Það hefur verið nefnt hátæknisjúkrahús á lóð Landspítalans. Það kostar á fjórða tug milljarða eða um helming þess sem fékkst fyrir Símann og byggingartíminn er langur. Einnig hefur verið nefnt að ráðstafa mætti hluta fjárins til uppbyggingar á fjarskiptakerfi landsmanna, samgöngumannvirkjum og fleira," segir Geir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar hefur gagnrýnt tengsl Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Símans, við einstaka bjóðendur í fyrirtækið. Þar er átt við aðaleigendur Bakkavarar sem fara með stærsta einstaka hlutinn í Skiptum ehf. Geir Haarde gefur lítið fyrir slíka gagnrýni og þykir hún ómakleg enda hljóti allir bjóðendur að sitja við sama borð.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Fleiri fréttir Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Sjá meira