Mæling Hvannadalshnjúks bíður 27. júlí 2005 00:01
Í öllum kennslubókum og alfræðiritum stendur skrifað að Hvannadalshnjúkur sé hæsti tindur Íslands, 2119 metrar. Það er óumdeilt að hann er hæstur tinda, en ekki eru allir vissir um að hæðin sé rétt mæld. Nú á að skera úr um það með nákvæmustu mælitækjum sem til eru. Hnjúkurinn var mældur 2119 metrar árið 1904 með svokallaðri þríhyrningsmælingu. Síðan hafa verið gerðar nokkrar mælingar með ýmsum aðferðum sem sýna frá 2.111 metrum upp í 2.123. Mælingin nú er samvinnuverkefni Landmælinga Íslands (LMÍ), Jarðvísindastofnunar Háskólans og Landhelgisgæslunnar sem ferjar mælitækin upp á jökulinn. En hvernig verður farið að því að mæla hæðina nákvæmlega? Þórarinn Sigurðsson, forstöðumaður mælingasviðs LMÍ, segir að notuð sé GPS-tækni þar sem mælistöður séu skráðar niður í tvo sólarhringa til að fá nákvæmni. Aðspurður hvort þetta sé 100% nákvæmni segir Þórarinn svo vera - en svo megi deila um hver nákvæmnin verður. Hann segir að ef það takist að mæla í tvo sólarhringa megi jafnvel búast við að hæðin fáist með sentímetra nákvæmni. Til stóð að þyrla Landhelgisgæslunnar færi fyrstu ferð upp á jökul frá Skaftafelli klukkan tíu í morgun en þar sem hún var kölluð út í nótt gat áhöfnin ekki mætt aftur til vinnu fyrr en klukkan eitt; þá hefði ekki verið hægt að komast upp eftir fyrr en undir kvöld og vafamál hvort náðst hefði að koma öllum tækjum fyrir á sínum stað. Þórarinn var mjög svekktur yfir því að komast ekki upp í dag en segir ekkert við því að gera. Útköll Landhelgisgæslunnar séu brýnni en þetta verkefni. Þórarinn segir að búist sé við því að hnjúkurinn sé á bilinu 2110-2112 metrar en hann óskar þess samt að hann sé hærri en skráð hæð í dag, 2119 metrar.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira