Innlent

Bubbi ætlar í skaðabótamál

Bubbi Morthens ætlar að höfða skaðabótamál fyrir meiðyrði á hendur 365 prentmiðlum, sem gefa út tímaritið Hér og nú. "Við erum búin að senda körfugerð sem engin viðbrögð hafa komið við, þannig að næsta skrefið verður bara að stefna málinu fyrir dóm," segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögfræðingur Bubba. "Þetta varðar sígarettufréttina og það er sá þáttur sem við ætlum að láta reyna á," segir Sigríður Rut en með því á hún við mynd sem birtist af Bubba á forsíðu blaðsins Hér og nú undir fyrirsögninni "Bubbi fallinn".



Fleiri fréttir

Sjá meira


×