Ákært fyrir fjöldamorðin í Dujail 7. júní 2005 00:01
Fjöldamorð á íbúum smábæjarins Dujail í Írak verður fyrsti ákæruliðurinn sem tekinn verður fyrir í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta. Fastlega er búist við að réttarhöldin hefjist innan tveggja mánaða. Dujail er fámennt bændasamfélag. Það var þar sem gerð var árás á bílalest Saddams Husseins árið 1982. Banatilræðið við forsetann mistókst en hefndaraðgerðir manna hans voru miklar. 50 bæjarbúar voru teknir af lífi. Auk Saddams Husseins verða fimm menn, þeirra á meðal hálfbróðir hans, ákærðir fyrir fjöldamorðin í Dujail. Mohammed Hassan Mahmoud, bæjarstjóri í Dujail, segir að íbúar séu mjög ánægðir með að mál bæjarins skuli vera fyrsta ákæra sem lögð verði fram á hendur Saddam Hussein. Bærinn sé stoltur af því að vera sá fyrsti sem refsi harðstjóranum. Ákæran á hendur Saddam, sem var handsamaður í desember árið 2003, er viðamikil og tekur til glæpa gegn mannkyni í 23 ára valdatíð hans. Morð á trúarleiðtogum og pólitískum andstæðingum er meðal ákæruliða sem og eiturgasárás á Kúrda og fjöldamorð þegar hann barði niður uppreisn sjíta og innrásin í Kúveit. Búið er að koma upp réttarsal á Græna svæðinu svokallaða í Írak þar sem írakska ríkisstjórnin hefur aðsetur og bandaríska sendiráðið er til húsa. Lögmenn Saddams Husseins gagnrýna íröksk stjórnvöld fyrir að ætla sér of lítinn tíma fyrir undirbúning réttarhaldanna og kvarta jafnframt yfir því að hafa ekki aðgang að Saddam og ellefu öðrum mönnum, sem voru valdamiklir í Írak, en þeim er haldið föngnum í bandarísku fangelsi í grennd við flugvöllinn í Bagdad.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira