Erlent

Níræð kona barði þjóf

Katherine Woodworth, 91 árs gömul kona, barði töskuþjóf með innkaupapoka sínum og hrakti á endanum á flótta á bílastæði verslunar í Toledo í Bandaríkjunum um helgina. "Ég var ekki með heyrnartækið og vissi í fyrstu ekki hvað hann sagði," sagði hún. "Svo endurtók hann að hann vildi töskuna og ég hélt nú ekki." Í kjölfarið handtók lögregla tvítugan mann og kærði fyrir þjófnaðartilraun, árás og fyrir eiturlyfjaneyslu. Lögregla taldi þó óráðlegt að konur á þessum aldri tækjust á við árásarmenn. Konan taldi aldurinn þó litlu skipta. "Ég verð 92 í ágúst og er líklegra kjarkmeiri nú en þegar ég var yngri," sagði hún.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×