Erlent

Mannskætt umferðarslys í Úganda

Að minnsta kosti 30 ferðmenn frá Rúanda létust þegar rúta á leið til Kenía og flutningabíll rákust saman í suðurhluta Úganda í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir lögreglu á svæðinu að 20 hafi lifað slysið af en að meirihluti þeirra sé mjög alvarlega slasaður. Tildrög slyssins eru ókunn en vegarkerfið í Úganda er sagt mjög bágborið. Á síðasta ári létust að minnsta kosti 40 manns í svipuðum árekstri, en þá óku rúta og eldsneytisbíll saman með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi sprakk í loft upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×