Erlent

Sýknaðir af ákæru um pyntingar

Líbískur dómstóll sýknaði í dag níu lögreglumenn og lækni sem sakaðir voru um að þvinga fimm búlgarskar hjúkrunarkonur til þess að játa að hafa að þær hefðu viljandi smitað á fimmta hundrað barna af HIV-veirunni á sjúkrahúsi í Líbíu. Hjúkrunarkonurnar hafa ásamt palestínskum lækni verið dæmd til dauða fyrir verknaðinn en þau hafa setið í fangelsi í Líbíu í sex ár vegna hans. Fólkið heldur fram sakleysi sínu og segir líbísk stjórnvöld gera þau að blórabögglum í stað þess að viðurkenna að HIV-smitin megi rekja til skorts á hreinlæti á sjúkrahúsum. Búlgörsk stjórnvöld höfðu vonast til þess að lögreglumennirnir og læknirinn yrðu sakfelldir svo hægt yrði að fella málið niður en þær vonir hafa nú orðið að engu. Sexmenningarnir hafa áfrýjað bæði dauðadóminum og úrskurðinum í dag til æðra dómsvalds og á meðan reyna búlgörsk stjórnvöld að vinna að lausn þeirra. Málið hefur haft nokkur áhrif á samskipti Líbíu og Evrópusambandsins, sem hefur gangrýnt málsmeðferðina harkalega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×