Stríðsglæpadómstóll skoðar Darfur 6. júní 2005 00:01
Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag tilkynnti í gær að hann hygðist rannsaka ásakanir um stríðsglæpi í Darfur-héraði í Súdan. Súdönsk stjórnvöld ætla ekki að vinna með starfsmönnum dómstólsins. Í yfirlýsingu sinni í gær sögðu saksóknarar við Alþjóðastríðsglæpadómstólinn að rannsókn þeirra yrði "sjálfstæð og óháð og myndi beinast að þeim einstaklingum sem bæru ábyrgð á grimmdarverkunum sem framin hafa verið í héraðinu undanfarin misseri," Þetta verður stærsta verkefni réttarins síðan hann var settur á fót árið 2002. Síðan átök hófust í Darfur í febrúar 2003 er talið að 180.000 manns hafi týnt lífi og tvær milljónir manna hafi hrakist frá heimilum sínum. Ásakanir um illvirki skæruliðaflokka, studdum af ríkisstjórninni, komu á borð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í apríl og vísaði ráðið málinu áfram til dómsstólsins. Bandaríkin viðurkenna ekki lögsögu dómstólsins en ákváðu samt að beita ekki neitunarvaldi sínu. Súdönsk stjórnvöld hafa þegar lýst því yfir að þau ætli ekki að starfa með starfsmönnum dómsstólsins og þykir formælendum mannréttindasamtaka það til marks um að þau viti upp á sig sökina.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira