Össur innblásinn 11. maí 2005 00:01 "
Innblásinn af ferli ríkisstjórnarinnar gat ég ekki annað en haldið kröftuga ræðu um þau mál sem hún hefur vanrækt," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og nýbakaður ræðuskörungur Alþingis. Össur segist vera í miklu stuði þessa dagana. "Ég kom mjög afslappaður í umræðuna. Tók langan göngutúr út í Gróttu og þaulhugsaði það sem ég ætlaði að segja. En ég held að það sem hafi fyrst og fremst gert þessa ræðu góða var að hún var málefnaleg." Össur fékk forláta styttu í verðlaun af ræðumanni sem hann segir að minni töluvert á Tony Blair, "formann Samfylkingarinnar í Bretlandi". Styttuna gaf hann Birtu dóttur sinni, sem var afar stolt af pabba sínum. Spútnikræða kvöldsins kom hins vegar frá Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Frjálslynda flokksins, sem rak lestina í fyrra en skaust upp í annað sæti í ár. "Hann hafði allt með sér," segir Ingimundur K. Guðmundsson, formaður JCI á Íslandi og annar ræðudómara. "Þetta var kröftug og beitt ræða og hann notaði kímni á skemmtilegan máta þegar hann skaut aðeins á Guðna Ágústsson, sem flutti ræðu á undan." Sigurjón fór á námskeið hjá JCI í janúar og Ingimundur er ekki í nokkrum vafa um að það hafi skilað árangri. Keppnin var hins vegar hnífjöfn. Aðeins níu stig af 250 skildu Össur og Sigurjón að. Skammt á eftir Sigurjóni kom Ögmundur Jónasson úr Vinstri grænum, en fast á hæla honum fylgdi Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknar. JCI hefur boðið öllum þingmönnum upp að fertugu að sækja hjá sér ræðunámskeið og Ingimundur segir að ekki sé vanþörf á. "Fjórir efstu ræðumennirnir voru í sérflokki en umræðurnar í ár voru slakari en í fyrra. Það voru allt of margir sem fluttu ekki ræðuna, heldur lásu hana bara upp." Ræðuskörungur Alþingis verður valinn árlega héðan í frá og nafn hans greipt í gjörvulegan skjöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira