Innlent

Össur innblásinn

"Innblásinn af ferli ríkisstjórnarinnar gat ég ekki annað en haldið kröftuga ræðu um þau mál sem hún hefur vanrækt," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og nýbakaður ræðuskörungur Alþingis. Össur segist vera í miklu stuði þessa dagana. "Ég kom mjög afslappaður í umræðuna. Tók langan göngutúr út í Gróttu og þaulhugsaði það sem ég ætlaði að segja. En ég held að það sem hafi fyrst og fremst gert þessa ræðu góða var að hún var málefnaleg." Össur fékk forláta styttu í verðlaun af ræðumanni sem hann segir að minni töluvert á Tony Blair, "formann Samfylkingarinnar í Bretlandi". Styttuna gaf hann Birtu dóttur sinni, sem var afar stolt af pabba sínum. Spútnikræða kvöldsins kom hins vegar frá Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Frjálslynda flokksins, sem rak lestina í fyrra en skaust upp í annað sæti í ár. "Hann hafði allt með sér," segir Ingimundur K. Guðmundsson, formaður JCI á Íslandi og annar ræðudómara. "Þetta var kröftug og beitt ræða og hann notaði kímni á skemmtilegan máta þegar hann skaut aðeins á Guðna Ágústsson, sem flutti ræðu á undan." Sigurjón fór á námskeið hjá JCI í janúar og Ingimundur er ekki í nokkrum vafa um að það hafi skilað árangri. Keppnin var hins vegar hnífjöfn. Aðeins níu stig af 250 skildu Össur og Sigurjón að. Skammt á eftir Sigurjóni kom Ögmundur Jónasson úr Vinstri grænum, en fast á hæla honum fylgdi Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknar. JCI hefur boðið öllum þingmönnum upp að fertugu að sækja hjá sér ræðunámskeið og Ingimundur segir að ekki sé vanþörf á. "Fjórir efstu ræðumennirnir voru í sérflokki en umræðurnar í ár voru slakari en í fyrra. Það voru allt of margir sem fluttu ekki ræðuna, heldur lásu hana bara upp." Ræðuskörungur Alþingis verður valinn árlega héðan í frá og nafn hans greipt í gjörvulegan skjöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×