Ekki lengra gengið í aðhaldi 29. apríl 2005 00:01
Háskólaráð og deildarforsetar við Háskóla Íslands telja að til þess að skólinn geti áfram staðið undir þeim kröfum og væntingum sem til hans séu gerðar verði ekki gengið lengra í aðhaldi og sparnaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun Háskóla Íslands vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um stofnunina. Í ályktuninni benda yfirvöld í háskólanum á að í skýrslunni komi fram að rekstrarkostnaður Háskóla Íslands sé lægri en í sambærilegum háskólum í nágrannalöndum og að þó svo að fé til rannsókna hafi nánast staðið í stað hafi afköst í rannsóknum aukist. Háskóli Íslands hafi náð ágætum árangri á mörgum sviðum, fjöldi útskrifaðra nemenda í grunn- og meistaranámi sé mikill, doktorsnemum hafi fjölgað og að rannsóknavirkni íslenskra vísindamanna sé tiltölulega há. Segir í ályktuninni að skýrslan leiði ótvírætt í ljós að við meðferð og nýtingu ríkisfjár sé gætt hagkvæmni og skilvirkni í rekstri Háskólans. Þá telur Háskóli Íslands að skýrsla Ríkisendurskoðunar sýni einnig að einkar mikilvægt sé að sérstaða Háskóla Íslands sem alhliða háskóla í alþjóðlegri samkeppni sé viðurkennd. Standa verði vörð um rannsóknahlutverk skólans og efla og styrkja rannsóknastarf hans til að gera honum kleift að gegna áfram hlutverki sínu sem mikilvægasta menntastofnun þjóðarinnar. Þá er bent á það að til þess að fé til rannsókna við Háskólann verði sambærilegt við rannsóknarfé þeirra sex norrænu skóla sem HÍ ert borinn saman við í skýrslu Ríkisendurskoðunar þurfi fjárveiting til rannsókn að minnsta kosti að tvöfaldast. Fjárveitingar til kennslu séu einnig lágar í samanburði við hliðstæða erlenda háskóla og hafi Háskóli Íslands bent á að framlög ríkisins vegna nemenda hafi ekki hækkað í takt við kostnaðarhækkanir. Háskóli Íslands tekur undir ummæli menntamálaráðherra að efla þurfi háskólamenntun í landinu með Háskóla Íslands í fararbroddi en ætlast til þess að stjórnvöld auki fjárveitingar til Háskóla Íslands svo þær verði sambærilegar við fjárveitingar til norrænna háskóla.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira